Smá upprifjun til að koma okkur í réttu stemminguna fyrir kvöldið

LAUGAMANNASÖNGUR
Þ
egar himininn blakknar mín hrapstjarna skín
þá fer hugurinn aftur að leita til þín.
Nú er fjarri og gleymd okkar stefnumótsstund
enginn staður á jörðu sem man okkar fund.
Manstu vetrarins spá, hvers þú spurðir mig þá
þegar spor lágu í snjónum við Reykjadalsá.
Nú er veturinn liðinn og löngun mig ber
heim að Laugum á slóðir sem gekk ég með þér.


Þá var skóli í Reykjadal rétt undir hlíð
þá var rökkur og skin þá var æskunnar tíð.
Þótt ég glopri því niður sem gleðin mér bar
aldrei gleymast mér sporin í hjarninu þar.
Þá var stjarna sem brann, þá var straumur sem rann
þá var styrjöld sem enginn í heiminum vann.
Þó að kulni mín glóð, enginn kveði mín ljóð
vil ég kveðja og tæma hinn glataða sjóð.


                                          Örn Snorrason

Jííííha - nú er fjör

Látið nú heyra í ykkur!

kv/óstjórnin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Erlendur Geirdal - mætir  

Sjáumst hress í kvöld.

Óstjórn (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 13:34

2 identicon

Kveðja frá Þórarni Pálma:

Kemst því miður ekki, þarf að mæta á Goðamót í fótbolta á Akureyri.  Ætli ég verði ekki um það bil að renna í hlað Glerárskóla þegar þið hittist í kvöld...

Óstjórn (IP-tala skráð) 29.2.2008 kl. 13:36

3 Smámynd: Laugar

Kveðjafrá Gunnari Svavars:

Sæl og takk fyrir boðið - kemst því miður ekki í kvöld á
Laugahátíð - vona að þið skemmtið ykkur vel án mín....

Kær kveðja - Gunnar Svavarsson

Laugar, 1.3.2008 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Laugar í Reykjadal

Höfundur

Laugar
Laugar

Ég mæti

Ætlar þú að mæta?
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Helga og Solla
  • Todda og Una María
  • Gilli og Fía
  • Maggi
  • Siggi

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 83177

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband